Like a beautyful butterfly

***OOOOOOOOO***

24.01.2008 13:48:28 / eloa

hellú

Allt gott að frétt hérna megin.. fyrir utan helv.. snjó endalaust. Hann er nú ekki búin að vera lengi en mér finnst einsog hann hafi verið hér í mörg ár. Ég er komin með leigjanda..jibbý.. hann kemur fyrsta febrúar, þá verður maður að hætta að strippa um íbúðina :( En það er í lagi því kostirnir eru fleiri. Um seinustu helgi fór ég á árshátið með Samkaup, sem var rosalega skemmtilegt. Hún var á Broadway og það var sýning með Friðrik Ómar og Jogvan, eitthvað svona George Michael,, og það var mjög gaman. Dansararnir voru svakalegir..... vá þvílík tilþrif. Svo er að líða að því að ég fari til Köben. Ég er að fara með vinnunni þann 15 febrúar. Hlakkar alveg heavy til.


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 17:48:11 / eloa

...

GLEÐILEGT ÁR


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 16:23:54 / eloa

æaslkdjf

Best að henda inn smá færslu. KOLvitlaust veður hér í BGN city. Þvílíkt rok hef ég nú ekki séð lengi. Er eitthvað að rembast við að hengja upp jólaseríur, var að hjálpa Helenu að setja upp í garðinum hjá henni í gær og við enduðum á því að setja á svalirnar hjá mér en trúiði mér það fýkur sko ekki. Því serían var sett upp með girðingarlykkjum...... :) En núna er ég að hugsa um að fara og kaupa jólagjafir...kerti og spil á línuna....hehe

Kv. Eds


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 01:08:03 / eloa

Stína og Brodda

Jæja hvað segiði fólk? Já Dagný mín ég er sko ekki dugleg í þessum myndabransa...hehe En það er alltaf jafn gaman að skoða myndir hjá ykkur mæðgum :) Fór í Kolaportið á sunnudaginn að selja diska fyrir utanlandsferðinni :) Inga og Ragnheiður voru líka en við seldum minna en við vonuðum. Mér fannst þetta nú samt skemmtilegt svo kom Birna og kíkti á okkur, hjálpaði okkur líka að bera útí bíl. Takk fyrir það Birna mín. Svo fer að styttast í jólin og er ég að fara vinna smá auka á morgun til að skreyta:) Ég var hjá Helenu á föstudagsnóttina, við fengum okkur nokkra kalda og spiluðum langt fram á nótt. Freyr fór í jeppaferð með Bubba (sem flestir eru líklega búnir að heyra af) En þeir komu ekki heim fyrr en á mánudag þar sem einhverjir bílar biluðu og aðrir festust. Björgunarsveitnin kom þeim svo til hjálpar þannig að þeir komu allir heilir heim. Ég hitti Önnu J í dag. Alltaf gaman að hitti vini sem maður hefur ekki séð lengi. Já Anna mín 80% :) vonandi verður það 100% haha koma svo......


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 23:32:12 / eloa

Ný færslós

Okey best að skella inn einni færslu og geri ég það aðalega fyrir hana nöfnu mína :)

Ég ætla að byrja á því að tala um dýrin, enn og aftur... Berta er dauð og aðeins 3 af 95 börnum hennar lifa. Fluffy the bunny er enn við góða heilsu og étur gulrætur í massa vís. Einn fiskur dauður en sniglarnir fjölga sér endalaust. Og svo eru það nýju íbúarnir.....vá þeir eru furðulegir. Þeim tókst að verpa í dag 8|  tveimur stórum eggjum en veit ekki hvor gerði það. En nokkrum augnablikum síðar tókst þeim að brjóta bæði eggin og er búrið frekar ógeðslegt. Sem þýðir einfaldlega það að ég þarf að þrífa það AFTUR :S Hversu mikil drulla kemur frá þessu dýrum eiginlega? Já svo fór ég á haustfagnað dalamanna um helgina og þótti mér það hin mesta skemmtun. Byrjaði á því að fara á hrútaþukl sem var kindarleg skemmtun og þegar ég hafði fengið nóg af þeim sauðaháttum skellti ég mér á Laugar með Birnu, Jóhanni og Tryggva á fótboltamót þar sem Baldur var að sparka í tuðru. Við Birna entumst ekki lengi á bekkjunum og skelltum okkur því í skoðunarferð um Laugar. Skoðuðum gamlar myndir af fjölskyldumeðlimum og hlógum við ákaft, skoðunarferðin endaði á borðtennis niður í kljallara. Ég var búin að gleyma hvað það er gaman í borðtennis :D

Við slepptum því að fara á matinn og skemmtunina og fór því heim í sturtu og skelltum í okkur nokkrum köldum og mjög undarlegum pastarétti....ehhehhe en var mjög góður. blikk blikk  ;)

Eftir fullt af tölvuleikjum og Lion king (þar sem Gísli fór á kostum) þá var brunað á ballið með smá stoppi á barnum í Búðardal. Ballið var mjög skemmtilegt, hitti fullt af skemmtilegu fólki, Baldur tíndi buxunum sínum og mig minnir að ég hafi dansað eitthvað að ráði.......... Heimleiðin var góð (allavegana fyrir mig því ég lá í fósturstellingunni) Morgunin eftir var hrikalega sársaukafullur því ég var með dúndrandi hausverk.

Þessi færsla er orðin nógu löng í bili....

Ble Eds


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 00:35:48 / eloa

Hrútaþukl og fleira....

Ein önnur helgin að fara af stað... Er að fara vestur á haustfagnað dalamanna :) og er meiningin að enda á balli í Árbliki og ef ég nenni þá kannski blogga ég um þetta eftir helgi.

Dýralífið á þessu heimili er endalaust að breytast og veit ég hreinlega ekki hvernig þetta endar allt saman. Nýjustu meðlimirnir eru alltaf að slást eða önnur ræðst á hina og reynir að bíta af hinni klærnar.. fiskarnir veikir og Berta búin að éta mest allt af börnunum sínum. Purki er líka eitthvað skrítinn, krafsar og bítur mig og vill bara vera í búrinu sínu?? Skil ekkert í honum. Svo var ég beðin um að passa tvær tarantúllur en það er ekki fræðilegur að ég geti sofið í sama húsi og þær... ekki séns

.................................................................................ojjj

jólin jólin já nú styttist sko í jólin..............Ætliði að gefa mér jólagjöf?? Eða alla vega jólakort?? Munið samt að það er bannað að kveikja á séríum fyrr en fyrsta desember, annað er bara siðferðislega rangt.....

Gerið þið nú eitthvað af viti, annað en að hanga og lesa bloggið mitt....


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 23:47:37 / eloa

Insomnia.........

Þriðji dagurinn í röð sem ég er ekki að ná að sofna fyrir þrjú, óþolandi. Þá er um að gera að hanga í tölvunni, betra en að liggja og stara upp í loft. Ekki er hægt að treysta á sjónvarpið því núna er bara formúlan og Silvía Nótt. Fukkin Silvía... finnst hún endalaust leiðinleg. En okei núna er eitthvað að gerast .. Foo Fighters á Rúv. Skárri en ljóskan með froðuheilann.

$#$#";)$(/#";)=


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 13:07:58 / eloa

hubahubb hubahuba hubahubb hubb hubb

...var að vakna..alveg merkilegt hvað maður getur sofið.. :) Annars er allt í fínu standi á þessu bæ, humarkrílin stækka og ég veit ekkert hvað ég á að gera við þau þar sem búrið sem þau eru í er oggulítið. Er að hugsa um að gefa öllum gæluhumar í jólagjöf... Vill einhver solleis?? Svo er ég endalaust að finna fleiri snigla í fiskabúrinu... orðnir fjórtán talsins.. og ekki veit ég hvaðan þeir komu. Þeir eru svo sem ágæt viðbót í búrið. Svo getur vel verið að ég sé að fara fóstra kanínu á morgun í óákveðin tíma. Held að bíllinn minn sé að syngja sitt síðasta. Allar reimar vælandi og pústið er farið að garga líka... svo eru dekkin svo ónýt að bíllinn dansar til og frá..það er vægast sagt ævintýri að fara út í búð. En best ad fara gera eitthvad gafulegt....... og einsog sest eru islenskustafirnir a lyklabordinu minu dottnir ut..... kann einhver ad laga tetta.....


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 14:51:24 / eloa

Í tilefni af laugardagskvöldinu...........

Merki um að þú sért orðin(n) of full(ur)

Þú tapar rökræðum við dauða hluti.

Þú þarft að halda þér í grasið til að detta ekki á jörðina.

Þú hefur ekki tíma til að mæta til vinnu...

Læknirinn finnur vott af blóði í áfenginu í þér.

Þú færð klósettsetuna í hnakkann.

Þú trúir því að áfengi sé fimmti fæðuflokkurinn.

24 tímar í sólarhring, 24 bjórdósir í kassa - tilviljun?? - Ég held ekki!

Tvær hendur, en bara einn munnur... - það er ALVARLEGT drykkjuvandamál.

Þú nærð betri fókus með annað augað lokað.

Bílastæðin virðast hafa færst til á meðan þú varst inni á barnum.

Þú dettur af gólfinu...

Börnin þín heita Guinnes og Tuborg.

Hey, í fimm bjórum eru jafn margar kaloríur og í einum hamborgara. Sleppum kvöldmatnum!!!

Býflugur verða fullar eftir að hafa stungið þig.

Á AA-fundinum segir þú: „Hæ, ég heiti... eh...."

Fyrsta sparnaðarleið sem þér dettur í hug er að minnka saltneyslu.

Þú vaknar inni í svefnherberginu, nærfötin þín eru inni á baði, þú sofnaðir í fötunum.

Allir á barnum heilsa þér með nafni þegar þú kemur inn.

Þér finnst köttur félaga þíns alltaf vera meira og meira aðlaðandi.

Roseanne lítur vel út.

Þú þekkir konuna þína ekki nema að þú sjáir hana í gegnum botninn á bjórglasinu.

Þú vaknar í Kóreu í júlí og það síðasta sem þú manst er 17. júní veisla hjá Íslendingum í Frakklandi.

Runnarnir eru líka fullir eftir að þú hefur vökvað þá.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 00:43:54 / eloa

já einmitt

Ok var að horfa á Kastljósið og þar var verið að tala um afgreiðslufólk sem ekki talar Íslensku.. auðvitað er þetta ekki hægt, ég meina ef íslenskt fólk kemur inn í verslun á ÍSLANDI á það að geta fengið aðstoð á Íslensku. Ekki er ég að ætlast til þess að allir skilji mitt tungumál í verslunum í öðrum löndum en það er lámark að þegar ég fer útí sjoppu að kaupa mér kók að afgreiðslu fólkið skilji mig ....til hvers í anskotanum er þetta fólk annars þarna. Svo var líka verið að tala um fjármagnið sem fer í það að bjóða útlendingum uppá íslensku kennslu. Og var talað líka um það að sumir af útlendingunum vilja ekki læra íslensku. Halló er ekki verið að tala um ókeypis ísl.kennslu? Ef þetta lið kann ekki íslensku á það bara að vera í einhverju sem ekki tengist því að afgreiða fólk. Ég vinn í verslun og ekki dytti mér í hug að senda fólk í afgreiðslu sem ekki kynni íslensku. Eða hvað finnst ykkur? Finnst ykkur þetta í lagi?

P.S. Berta er komin með að minnsta kosti 30 afkvæmi....lítil og ljót :/ og já svo er líka búið að eitra fyrir meindýrunum sem ekki var boðið að búa hjá mér...

Eds....spinnigal.....eða bara Skapti :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 18:49:38 / eloa

*O*O*O*O*O*O*O*O*

Helvítis kvef alltaf... ég er búin að vera með kvef núna í eina og hálfa viku og er ekkert að hressast. Svo eru leitir um helgina, vonandi verð ég búin að losna við slenið þá, það væri líka alveg eftir því að ég yrði beðin um að vinna um helgina. Ég og Inga skelltum okkur uppí hesthús til Bjarkar og Óla. Við gáfum þeim happaskeifu og fífla...:) Svo lentum við í smá ævintýri. Fjórir af sex hestunum þeirra hoppuðu yfir og hlupu í átt að þjóðveginum (óþekku hestarnir hans Óla:) ) en það voru kallar að grafa eitthvað hjá veginum þannig að þeir hlupu á smá grasblett. Og það gekk furðu vel að koma þeim inn. Þetta var nú nokkuð hressilegt... Annars er ég ég búin að vera í vaktarfrí í tvo daga og hef ekki gert mikið nema hanga í Sims.

Góðar Stundir

Edda


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 01:23:08 / eloa

:)

Til þín kæra/kæri vinkona/vinur

Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins.
Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi.
Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna.
Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu.
Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.
Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. Þú hefur staðið þig með prýði ,en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur sárinu,en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar,örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör.

Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér.?
Nú er alþjóðleg vinavika. Sýndu vinum þínum hve mikils þú metur þá
og sendu þeim þetta bréf. Það getur vel verið að þú fáir bréfið til baka og þá finnur þú að þeir meta vináttu þína. Þú hefur þú safnað um þig vinahring.
Gleðilega vinaviku!! Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður.
Sendu nú bréfið til vina eða fjölskyldu.
Og fyrirgefðu mér ef ég hef skilið eftir göt í grindverkinu

þínu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 12:15:54 / eloa

sjúddí rarí rei

Veik veik og endalaust veik................

Kom heim að vestan á sunnudag og var þá orðin slöpp og núna ligg ég heima og vorkenni mér.

Það var æðislegt fyrir vestan, leitirnar með svolítið öðru sniði en áður. Tveir dagar smalaðir á einum degi og fjöldin af fé í fjárhúsunum var rosalegur enda þurftum við að reka úr einni kró til þess að geta dregið úr ókunnugt. Fjólksfjöldinn var líka tvöfalt meiri en venjulega og að fara inn í fjárhús var einsog að fara í smáralindina rétt fyrir jól. Það hélst þurrt alla helgina en á laugardaginn var brjálað rok. Eftir nokkur skrautleg og skemmtileg atvik í réttinni skellti ég mér heim í sturtu því mín var á leiðinni á réttarball. Flest allir sem eftir voru í réttinni komu heim og var þar mikil gleði langt fram eftir nóttu. Birna og Baldur komu svo og sóttu mig á ballið. Það var rosa stuð á ballinu og dansaði ég mikið. Held að við Baldur höfum verið frekar skrautleg en allt fór þó vel fram.

en nóg af babbli....

ble ble

Eds


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 11:39:36 / eloa

....................

Jæja þá er maður búin að klára fyrstu vaktina í Hyrnunni, skrítið að vera komin aftur (í þriðja skiptið;) Helgin var fín, fór til Helenu á föstudag og sötraði bjór og spjallaði, skelltum okkur aðeins á Dússa. Fór svo á Chris Cornell á laugardaginn með Ingu og Krissa. Það var rosalega skemmtilegt, hitti líka Ebbu frænku. Sætin voru reyndar á lélegum stað, alveg upp við vegginn öðru megin en við sáum samt alveg fínt. Þegar tónleikarnir voru búnir brunaði ég til hennar Bennýjar í innflutnings afmælispartý :) sem var algjört æði. Þar var boðið uppá ekta íslenskan partýmat.. þ.e.a.s kjötsúpu, svið, rúgbrauð, flatkökur og svo píndi Siggi í mig gúlsopa af íslensku brennivíni þegar ég kom sem varð til þess að ég fann ekkert bragð af súpunni ...hehe Mér fannst þetta partý frábært í alla staði, skemmtilegt fólk og skemmtilegir hundar...hehe Vona að þau stundi það í vetur að halda partý.... Mamma mín er á Spáni hjá afa og kemur ekki heim fyrr en eftir viku..... En hitti ég pabba og Rúnar í dag, allt að fara á fullt á þeim bænum á næstu dögum, leitir og réttir. En ég kemst líklega ekkert hvorki í leitir né réttir útaf nýju vinnunni. Fúlt.....fojj.

Góðar stundir


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 22:38:32 / eloa

Why is six afraid of seven? Because seven eight (ate) nine.

Allt að gerast bara!! Er að fara í enn aðra vinnuna á þessu ári, orðnar þrjár sem sagt. Keypti mér fiskabúr um daginn. Þrjátíu fiska og tvo snigla...en helmingurinn drapst áður en þeir komust í búrið..svekkjandi. Er að hugsa um að reyna að komast í klippingu á morgun. Lít út eins villimaður. Er svo að fara á Chris Cornell á laugardaginn með Ingu og Krissa bró. Ætla svo að hitta Ebbu þar. Svo eru leitir að hefjast en veit ekki hvernig það verður þar sem ég er að fara í vaktavinnu... fer þá líklega í seinni leitir bara. Svo verð ég að segja að auglýsingin frá símanum með Jesú og síðustu kvöldmáltíðina er bara fyndin og ég skil ekki að fólk þurfi endalaust að vera væla út af einhverju svona.
En svona að lokum tveir brandarar sem vonandi fær ykkur til að brosa.

Góðar stundir :)

All the organs of the body were having a meeting, trying to decide who was in charge.

The brain said: "I should be in charge, because I run all the body's systems, so without me nothing would happen."

"I should be in charge," said the heart, "because I pump the blood and circulate oxygen all over the body, so without me you'd all waste away."

"I should be in charge," said the stomach, "because I process food and give all of you energy."
"I should be in charge," said the rectum, "because I'm responsible for waste removal."

All the other body parts laughed at the rectum and insulted him, so in a huff, he shut down tight. Within a few days, the brain had a terrible headache, the stomach was bloated, and the blood was toxic. Eventually the other organs gave in. They all agreed that the rectum should be the boss.

The moral of the story?

You don't have to be smart or important to be in charge... just an asshole.

Four Catholic ladies were having coffee.

The first Catholic woman tells her friends "My son is a priest. When he walks into a room, everyone calls him "Father."

The second Catholic woman chirps, "My son is a bishop. Whenever he walks into a room, people call him, "Your Grace."

The third Catholic mother says, "My son is a cardinal. Whenever he walks into a room, people say, "Your Eminence."

Since the fourth Catholic woman sips her coffee in silence, the first three women give her this subtle, "Well?"

So she replies, "My son is a gorgeous, 6' 2", hard-bodied dancer. When he walks into a room, people say, "Oh my God!"


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Myndir
aNiMaLs